Um okkur

Hverjir eru Bragðlaukar

Fyrirtækið Bragðlaukar var stofnað þann 1. ferbúar 2017 með þeim tilgangi að bjóða fyrirtækjum sem og einstaklingum upp á ferskan og bragðgóðan hádegsiverð á viðráðanlegu verði.

Fyrirtækið er rekið af hjónum sem hafa langa og víðamikla reynslu úr veitingageiranum. Þau heita Sigfús Jónsson matreiðslumaður og Arna Sif Gunnarsdóttir þjónustu- og framkvæmdastjóri.

Hjá fyrirtækinu starfa reynslumiklir starfsmenn sem koma víða að úr veitingageiranum og eru með langa og afar góða starfsreynslu.Þau eru fagmenn miklir og eru vel að sér þegar kemur að gæðum og þjónustu.

Björt og stílhrein kaffibarstemning í veitingastað Bragðlaukanna í Urðarhvarfi – með háum stólum, plöntum og stórum gluggum sem hleypa birtunni inn.

Okkar Mottó

Okkar markmið er ykkar ánægja!

Okkur er annt um umhvefið og náungann og við erum alltaf að reyna að gera betur í dag heldur en í gær. Hvort um sé að ræða ánægða viðskiptavini, flokkun a rusli, minni matarsóun eða gott klapp á bakið, þá skiptir það öllu máli.

Við hjá Bragðlaukum leggjum mikla áherslu á ferskleika, gæði og persónulega þjónustu.

Gæði og góð þjónusta

Ykkar upplifun skiptir okkur máli

Ferskt og gott hráefni

Við notum fyrsta flokks hráefni frá viðurkenndum birgjum

Hagstæð verð

Fiskur dagsins, fish & chips og veganréttur á frábæru verði.